Anton Guðmundsson með vænan urriða
BleikjaFréttirUrriði

Veiðiferð á Arnarvatnsheiði í allri sinni dýrð

Árlegur veiðitúr nokkurra galvaskra veiðimanna á norðanverða Arnarvatnsheiði bar heldur betur ávöxt þetta árið. Anton Guðmundsson, sem fer fyrir hópnum, segir mikið líf hafa verið á heiðinni og veiðin afar góð – vænn fiskur, bæði bleikja og urriði, veiðinn lét ekki á sér standa.

„Það var gaman að sjá hvað bleykjan er að ná sér vel á strik. Hún tók bæði flugu og maðkinn,“ segir Anton, sem er ánægður með árangurinn. „Það er alltaf yndislegt að koma upp til fjalla og njóta náttúrunnar – og ekki skemmir fyrir að hafa gítarinn með.“

Heiðin skartaði sínu fegursta og veiðimenn fóru heim með dýrmætar minningar  og vænan afla.


Gísli Jónatan Pálsson