BryggjuveiðiDorgveiðiFréttir

Allir út að veiða í Hafnarfirði

Fimmtudaginn 19. júní verður hin árlega dorgveiðikeppni á Flensborgarbryggju fyrir hafnfirsk börn á aldrinum sex til tólf ára. Keppnin byrjar um kl. 13:30 og veiða krakkarnir til kl. 14:30. Verðlaun eru svo veitt í kjölfarið.
Keppt verður í þremur flokkum – flestu fiskarnir, stærsti fiskurinn og furðufiskur 2025. Hægt verður að fá færi og beitu á staðnum. Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar sér um gæslu á svæðinu og Siglingaklúbburinn Þytur sér um gæslu af sjó.
Öll áhugasöm á aldrinum 6-12 ára eru hvött til þátttöku!