FréttirLaxveiði

Bubbi byrjaði sumarið með stæl

Bubbi Morthens með laxinn úr Laxá í Aðaldal, þann fyrsta á sumrinu

Veiðin er víða að komast á fleygiferð og Bubbi Morthens var að mæta til veiða í uppáhalds ánni sinni, Laxá í Aðaldal, þar sem hann verður við veiðar næstu daga og hann byrjaði veiðitúrinn með stæl.

,„Já þetta byrjaði vel, fékk 93 sentimetra lax  í Brúarstreng  á litla sunray númer 8,“ sagði Bubbi Morthens í samtali og bætti við; „ætli ég hafi ekki verið  með hann á í einar 10 mínutur, tók fast á honum svo fiskurinn fari ferskur útí. Þetta var bara gaman,“ sagði Bubbi enn fremur.

Veiðin er byrjuð í Laxá í Aðaldal fyrir alvöru og  búið að veiða í nokkra daga en fáir laxar hafa veiðst.