Hafþór Bjarni með smálax úr Festarfljóti
FréttirLífsstíll

Lítil rigning í kortunum – góður matur í veiðihúsinu

Veiðisumarið 2025 hefur farið rólega af stað. Það voru talsverðar væntingar til þess að tveggja ára laxinn myndi skila sér vel í árnar, sér í lagi vestan- og sunnanlands. Það hefur ekki alveg gengið eftir, reyndar hafa skilyrði verið fremur erfið víða, mikil hlýindi vestan lands og lítið vatn í ám í Borgarfirði svo dæmi séu tekin.

Opnanir hafa þó gengið ágætlega víða. Bæði Kjarrá og Norðurá skiluðu flottri veiði í opnun, en reyndar hefur svo aðeins dregið úr veiðinni.  Það var stórstreymt þann 12.júní sl. og svo virðist sem stóri straumurinn hafi ekki skilað þeim stórlaxagöngum sem veiðimenn höfðu vonast eftir. Næsti stóri straumurinn er þann 26. júní og þá má gera ráð fyrir að smálaxinn fari að sýna sig. 

Veiðin í sumar mun líkleg velta á því hvort það verði rigningarsumar eða ekki, því það er mjög hætt við vatnsleysi ef ekki rignir, því nánast engan snjó er að sjá á hálendinu.

Happy-hour plattinn sem veiðimönnum var boðinn

Bjarni Júlíusson og fjölskylda hans voru við veiðar í Hítará sl. helgi. Það var ekki mikið að gerast sagði Bjarni. Tveimur smálöxum var landað og sett í tvo til viðbótar sem báðir sluppu. Það náðist fiskur í Festarfljóti og annar á Breiðinni. „Það var fiskur víða um ána, en ekki mjög mikið af honum.

En það sem stóð uppúr í ferðinni að sögn Bjarna var maturinn og viðurgjörningurinn í veiðihúsinu. Þar eru einfaldlega snillingar að störfum. Þau Max, yfirkokkur og Anna báru fram þvílíka veislurétti að annað eins hefur ekki sést.  Max hefur unnið á 2 stjörnu Michelin stað og það mátti sjá á veisluborðinu sem þau slógu upp.