Risi í Miðá í Dölum
Jóhann Unnar Sigurðsson lenti í þvílíku ævintýri í morgun þegar hann setti í og landaði 105 cm laxi í Miðá í Dölum. Samkvæmt okkar bókum er þessi stærsti laxinn sem veiðst hefur í sumar, en nú er einmitt tími stórhænganna að ganga í garð!
Laxinn veiddist í Hamarshyl í Miðá í Dölum í morgun og tók hann Svartan Frances #14. Baráttan stóð yfir í um tvær klukkustundir.
Miða í Dölum hefur gefið 50 laxa og helling af silungi.