Fréttir

Ungir veiðimenn þurfa að læra handtökin

Árni Jón Erlendsson og Árni Rúnar Einarsson á veiðislóðum í Hvolsá í Dölum skiptir miklu máli að læra réttu handtökin

Flestir veiðimenn byrja veiðiskapinn á bryggjum landsins eða í vötnum, en svo er einn og einn, jafnvel fleiri, sem finna sér tjörn og veiða sinn fyrsta fisk og geyma hann um stund áður en honum er sleppt.

Það sem þarf er miklu fleiri unga veiðimenn á sviðið, endurnýjun er lítil sem enginn og það er vandamálið. Í sumar fóru nokkrar fjölskyldur til veiða og var verulega jákvæð upplifun, en það þarf miklu meira til.

„Það er lítið gert til að koma ungum veiðimönnum í veiðina, mjög lítið, þeir verða að finna það sjálfir hjá sér. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur sinnt þessu og eru með veiðidag á einum og einum stað, en ekkert meir,” sagði veiðimaður sem hefur fylgjast með þessi í mörg ár,

„Við þurfum átak, það er lítið sem ekkert að gerast, við þurfum miklu fleiri veiðimenn,“ sagði veiðimaður sem fór með syni sína til veiða og þeir eru núna komnir með delluna, fara mikið að veiða, fengu þetta beint í æð og það vantar miklu fleiri.

Það þarf að styrkja unga veiðimenn svo þeir geta veitt þar sem meiri veiðivon er og fleiri fiskar. Áhuginn kveiknar um leið og maður fær sinn fyrsta fiskinn og finnur tökuna, sem öllu máli skiptir fyrir veiðimanninn. Því fleiri að veiða því betra.

Veiðikortið hefur hjálpað mörgum að komast ódýrt til veiða í vötnum og ám, það kostar lítið og vötnin eru mörg þar sem fiskar eru. Aðeins að ná að komast á staðinn, kasta fyrir fisk og fá hann til að taka. Útiveran er frábær, tölvurnar fá frí og veiðimenn geta kastað óáreittir. Það er toppurinn.