Verður gaman að opna Langá
„Það verður gaman að opna Langá á Mýrum í næstu viku og aldrei að vita hvað gerist, laxinn er mættur,” sagði Jógvan Hansen, sem hlakkar til að byrja veiðisumarið þetta árið.
„Já það verður spennandi að opna ána í góðra vina hópi veiðimanna. Síðan eftir þetta verður veitt á nokkrum stöðum og svo Veiðivötn seinna í sumar. Veiðivötn eru stórkostlegur staður til að renna fyrir silung. Svo dettur alltaf eitthvað inn og svo erum við að skoða Mallandsvötn, fórum þangað í fyrra og veiddum vel af flottum silungum. En þetta er allt að byrja og sumarið leggst vel í mig, sagði hinn knái veiðimaður Jógvan.