„Ég hefði ekki trúað því, þegar Árni vinur minn Jörgensen fékk alvarlegt hjartaáfall í september í fyrra að hann ætti eftir að koma með mér í Elliðaárnar nú í sumar,” sagði Ólafur F Magnússon og þeir voru í Elliðaánum í gær.
„Veiðináttúra hans er slík og lífsgleði að honum halda engin bönd við laxveiðar úti í náttúrunni. Langt er síðan ég hef séð Árna vin minn jafn brattan og á þessari mynd.
En þrátt fyrir að yfir hundrað laxar hafi farið í gegnum teljarann síðasta sólarhring, var laxinn ekki að láta sjá sig. Það var líf á Breiðunni í lokin,” sagði Ólafur enn fremur.
Elliðaárnar hafa gefið á milli 25 og 30 laxa.