Duglegir að hnýta – hlakka til veiðisumarsins

Bræðurnir Högnir Sigurður (6 ára) og Þorri Matthías (10 ára) hafa tekið þátt í Febrúarflugum þetta árið með aðstoð frá pabba þeirra, Pálmari Sigurðssyni.
Þeir hafa horft á pabba sinn hnýta á eldhúsborðinu á kvöldin síðustu vikur og mánuði og sýnt því áhuga að byrja sjálfir.
Þorri Matthías tóka eina kvöldstund með pabba sínum og hnýtti með honum flugu sem hann vill kalla Jókerinn (peacock með rauðum kraga). Út frá þeirri kvöldstund fékk svo Pálmar þá hugmynd að gera Peakrókinn, þar sem Peacock og Króknum er skeitt saman (Jókerinn vinstri og Peakrókur hægri saman á mynd).
Högni Sigurður hefur einnig verið fyrir framan væsinn með pabba sínum og hefur hnýtt tvær straumflugur sem hann kallar Stökkið mikla (vinstri) og Krókódílinn (hægri).


Þeir bræður hafa nokkrum sinnum farið að veiða með pabba sínum og hlakka mikið til veiðisumarsins 2026 þar sem markmiðið verður að veiða fisk á flugur sem þeir hafa hnýtt.

