Ævintýri við Þjórsá
„Frá því tilraunaveiði hófst í Þjórsá við Urrriðafoss höfum við nokkrir félagar byrjað veiðitímabilið þar, alltaf á sama degi, þann 7. júní,“ segir Hjálmar Árnason og bætir við: „Byrjum kvöldið fyrir á mat á Selfossi en gistum síðan í gamla kvennafangelsinu að Bitru kvöldinu áður. Góðar aðstæður og þjónusta. Daginn eftir tökum við daginn snemma en allt í rólegheitum og stresslaust. Höfum ávallt verið heppnir með veður og veiðin misjöfn eins og gengur. Í gær áttum við stórkostlegan dag og settum í meira en 20 fiska. Margir sluppu enda drekar miklir, sterkir og stæltir. Þann stærsta fékk Stefán Einarsson, 97 cm dreka sem tók um hálfa klukkustunda að landa.
Sjálfur er ég ekki enn með fullt þrek eða styrk þannig að mér var bara komið fyrir á klettasyllu við Huldu, neðsta hylinn. Þaðan gat ég kastað og þegar fiskur var á rétti ég bara félögum mínum stöngina og þeir sáu um löndun. Fékk þannig fjóra fallega fiska.
Dag skal að kveldi lofa og heldur betur fóru sælir veiðimenn heim með góðan afla og enn einu sinni ljúfar minningar frá Urriðafossi. Flestir fiskanna veiddust á flot og maðk en hátt í 20 tökur á fluguna og flestir þeirra náðu að losa sig. Dásamleg byrjun á veiðisumri,“ sagði Hjálmar enn fremur.


Landarinn, Sturla Eðvarðsson búinn að skila fengnum