Við Haukadalsá
EldislaxarFréttir

Eldislaxar veiddust í Haukadalsá – rannsókn stendur yfir

Stangveiðifélag Reykjavíkur:

Í síðustu viku varð vart við eldislax í Haukadalsá og hefur nú þegar tekist að veiða níu einstaklinga. Niðurstöður sýnatöku verða kynntar á nœstu dögum og munu skýra hvaðan laxarnir
sluppu, en talið er líklegt aò þeir eigi uppruna sinn í sjóeldi á Vestfjörðum.

Um helgina fóru sjálfboðalidar frá Verndarsjóði Atlantshafslaxins (Nasf), ásamt landeigendum aò ánni, niður á neðsta svæðið í Haukadalsá. Þar náðist inn eldislax, taplega 90 sentimetra langur, auk um 80 hnúðlaxa. Telja sérfræðingar því að fleiri aðkomufiskar séu komnir inn í vatnakerfið.

Til ad bregðast við ástandinu hafa kafarar frá Noregi verið kallaðir til og er gert ráð fyrir að þeir hefji störf seinnipartinn á morgun.

Ákveðið var að hindra göngu laxa upp í Haukadalsvatn og Þverá. Í gær var því komið fyrir grindum bæði við affall Haukadalsvatns og í Þverá, með aðkomu árnefndar oq landeiganda. Fylgst verður grannt meò framvindu mála á næstu dögum og verður greint frá stöðunni þegar kafararnir hefja leit í ánni. Við viljum fara sjálfboðaliðum okkar innilegar þakkir fyrir ómetanlega aðstoð og samstöðu. Þá eiga veiðimenn einnig sérstakar þakkir skildar fyrir skilning og stuðning í því erfiða ástandi sem skapast hefur við ánna.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá verkefni gærdagsins.