Hlíðarvatnsdagurinn – Frítt að veiða við vatnið
Stangaveiðifélögin, sem eru með aðstöðu við Hlíðarvatn í Selvogi, bjóða gestum að koma og veiða án endurgjalds í vatninu næstkomandi sunnudag, 15. júní 2025. Þetta eru Stangaveiðifélagið Árblik, Ármenn, Stangaveiðifélag Hafnafjarðar, Stangaveiðifélag Selfoss og Stangveiðifélagið Stakkavík.
Veðurspáin fyrir Selvoginn á sunnudaginn lofar góðu. Spáð er 13 stiga hita, skýjuðu veðri og rólegum vindi, 1 m/sek. Það er þægilegt veður til veiði.
Fulltrúar frá félögunum verða á staðnum og munu leiðbeina gestum um agn, veiðistaði og aðferðir. Einnig verður að fá á staðnum ýmsar upplýsingar um vatnið og veiðina í því.
Gestum er frjálst að koma árla morguns á sunnudeginum og veiða til kl. 17:00 sama dag. Leyfilegt agn er fluga og spónn. Einungis er veitt frá landi. Gestir eru vinsamlegast beðnir að skrá aflann hjá einhverju félaganna. Skrá þarf veiðistað, tegund, lengd og agn. Gestum er bent á að lausaganga hunda við vatnið er óheimil vegna hættu fyrir sauðfé.
