Iðuslagurinn hafinn – fyrstu laxarnir á land
„Fjörið að byrja hérna við Iðu, Finnur Harðarsson er mættur, lögreglan kölluð til og fyrstu laxarnir eru komnir á land,“ sagði einn okkar viðmælendi við Iðu og eins og við mátti búast gæti komið til átaka við Iðu. Síðasta vetur sagði stjórn Veiðifélags Stóru Laxár upp samningi um afnot að Iðunni en veiði hefur verið stunduð þar í árhundruð, en sá veiðiskapur hafði hökkt einhvern tíma. Það hafa veiðst a.m.k. þrír laxar í morgun og Gunnar Pétursson sleppti sínum.
Búið er að klippa á a.m.k. 22 lása og slagurinn um veiði á Iðu heldur áfram, fyrstu veiðimennirnir eru mættir sinn dag á svæðinu. Næstu veiðimenn koma á eftir, þeir ætla að veiða eins og gert hefur verið síðustu ártugi.
Stóra Laxá opnar eftir hádegi í dag.
