Laxinn mættur í Haukadalsá
Laxinn er víða mættur í árnar þessa dagana og Ásgeir Heiðar sá lax í Elliðaánum og annan vænan. Í Ytri-Rangá er laxinn líka að mæta í vikunni og fyrstu laxarnir sáust í Haukadalsá í Dölum í Blóta í dag og fyrir ofan veiðihúsið í veiðistaðnum Horninu.
Einn lax alla vega á hvorum stað en jafnvel komnir fleiri og fleiri á leiðinni. En það verulega mikið líf á ánni enda verulegt magn af Straumöndum víða um ána og þær eru veiða ýmislegt sem finnst í ánni, verulega tignarleg sjón um alla á.
Það styttist í að Haukadalsá opni fyrir veiðimenn og verður spennandi að sjá veiðina byrjar, vatnið er gott þessa dagana enda hefur hún Haukadalsvatn sem forðabú og það hefur alltt að segja þegar allt getur skeð í vatnsmálum sumarsins.
