Margir á rjúpu um helgina um leið og veðrið skánaði
„Fyrsta daginn á rjúpu síðustu viku þá fórum við feðgar á gæsaveiði og það gekk rólega,” sagði Gunnar Ólafur Kristleifsson í samtali og bætti við; „en á laugardaginn og sunnudaginn fórum við á rjúpu. Fengum níu á laugardeginum og sex á sunnudeginum. Þetta var sama veiðin upp á fugl eins og síðustu tvo árin, fimmtán stykki. Já það verður farið aftur,” sagði Gunnar enn fremur.
„Við erum að fara á rjúpu í næsta nágrenni við Húsavík og það verður spennandi eins og alltaf, fínn labbitúr,” sagði maðurinn sem er einn af fjölmörgum sem lögðu þeir sína á rjúpu um helgina.
Í gær voru nokkrir á veiðum á Holtavörðuheiði og veiðimenn voru með engan fugl einhverjir og upp í nokkra fugla, rjúpan er verulega stygg þessa dagana í þessum veðurbreytingum viku eftir viku.
En það koma fréttir eftir þessa helgi.

