Mokveiði á stuttum tíma
„Við, Una og Katla (dætur mínar), ákváðum að kíkja í Geldingatjörn upp á Mosfellsheiði í nokkra tíma í dag og veiðin gekk vel á stuttum tíma,” sagði Tryggvi Haraldsson um veiðitúrinn sem gaf flotta fiska.
„Skemmst er frá því að segja að urriðinn byrjaði að taka maðkinn áður en hann fór út í. Alls urðu þeir 5 og allir á bilinu 3-4 pund. Stærsti fiskur náði 57 cm. Ótrúlegir tæpir 3 tímar í frábæru veðri,” sagði Tryggvi um veiðiferðina.
Geldingatjörnin hefur verið af gefa flotta veiði það sem af er sumri og væna fiska, mest urriða.