Myndasafn

Skeiðönd


Almennar upplýsingar Skeiðönd er sérkennileg önd, með sinn mikla gogg, hún er sjaldgæfasta öndin sem verpur reglulega hér á landi. Hún er minni en stokkönd, hálsstutt og fremur kubbsleg. Á steggnum skiptast á dökkir litir og hvítur, hann er með grængljáandi höfuð og háls, hvítur á bringu og teygir hvíti liturinn sig um axlafjaðrir aftur á undirgump. Hann hefur svart bak, gump og svart, ljósjaðrað stél, hvítar og svartar axlafjaðrir og rauðbrúnar síður og kvið. Í felubúningi er hann svipaður kollu, en dekkri að ofan með ljósari reiti á framvængjum. Bæði kyn eru með dökkgrænan spegil og ljósbláan reit á framvæng (vængþökum ) og hvíta rák þar á milli. Kollan er svipuð öðrum buslandakollum, verður best greind á miklum goggi, ljósgulbrúnum eða bleikleitum fjaðrajöðrum og vængmynstri, sem er daufara en á steggi. Vegna hins stóra goggs virðist skeiðöndin framþung á flugi. Hún er djúpsynd og veit goggurinn