Fátt er skemmtilegra en að fara og veiða með unga veiðimenn á þessum tíma árs. Hægt er að renna fyrir fisk víða, vötnin er góð og bryggjurnar eru góðar. Og það skiptir engu máli hvað maður er gamall, áhuginn skiptir öllu.
Bríet Lilja Birkisdóttir veiðikona í sinni fyrstu veiðiferð með mömmu og pabba, Afa Nilla og Ömmu Guðdísi. Fékk sjálf 3 flotta fiska á stöngina sína,svo ánægð og hlakkar mikið til að fara aftur í veiði, komin með 35 fiska bæði bleikju og urriða, er lífið ekki yndislegt?