Veiðin byrjar vel þrátt fyrir kulda og trekk
„Þetta var gaman en laxinn veiddist á Bryggjunum og var 77 sentimetrar,” sagði Fjölvar Daði Rafnsson, sem veiddi þriðja laxinn í Norðurá í opnun í morgun og bætti við; „jú það er ansi kalt út við á.”
Það hafa allavega veiðst fimm laxar sem verður að teljast gott í þessu tíðarfari en það var Brynjar Þór Hreggviðsson sem veiddi fyrsta lax á Collie dog númer 12 á Eyrinni. Laxar hafa víða sést síðustu daga eins og Eyrinni og víðar.

„Þetta voru tvö rennsli og tveir fiskar á Eyrinni,” sagði Brynjar Þór Hreggviðsson, ánægður með gang mála við ána.