Þjórsá er í efsta sæti með 332 laxa /Mynd GB

Það má segja að laxveiðin hafi oft byrjað betur en núna enda vantar stórrigningar á stórum hluta landsins eins og á Vesturlandi, það vantar líka þennan silfraða. Það sem þarf er að rigni í nokkra daga til þess að eitthvað breytist og við erum ekki að tala um nokkra dropa.

Veiðin hefur verið róleg í verulega róleg í nokkrum ám en Jónsmessustraumurinn er að detta inn og það er hægt að halda í vonina með hann.  En rennum aðeins yfir stöðuna eins og hún lítur út núna:

Þjórsá: Urriðafoss hefur gefið 332 laxa, síðan kemur Þverá í Borgarfirði  með 117 laxa, svo Norðurá í Borgarfirði með 85 laxa, svo Miðfjarðará 34 laxa, Haffjarðará með 34 og Skjálfandafjót með 28. Veiðin er ennþá róleg í Laxá í Kjós, Langá á Mýrum, Hrútafjarðará og Laxá í Leirársveit en allt getur breyst á nokkrum dögum. Rigning væri verulega vel þegin núna.