Fréttir

Veiðistöngin og vörubíllinn – henta vel þegar maður er bara þriggja ára

„Þegar ég hafði farið með hann á bryggjuna í tvígang og í hvort skiptið þurfti ég að berjast við að ná honum heim af bryggjunni, þá hugsaði ég strax að hann hefði gaman að því að fara með mér upp í Veiðivötn,” sagði Gísli Jónsson, faðir Hinriks Hrafn, sem er hér en með mikla veiðidellu.
„Sú ákvörðun var svo tekin með viku fyrirvara og lá Hinrik yfir veiðivídeóum og spurði og spurði. Hann var farinn að hlakka til þó hann hafi kannski ekki alveg vitað hvað hann væri að fara út í.
Við fórum með Herjólfi í hádeginu og vorum byrjaðir að veiða um 4 leytið. Það var ekki mikið líf í urriðanum þessa helgina, en spennan leyndi sér ekki, hann var kominn til að veiða fiskana. 
Á laugardagsmorgun ákváðum við að veiða marga fiska og fórum í Nýjavatn, þar er nefnilega mikið af smábleikju sem getur verið tökuglöð og skemmtileg fyrir krakkana. Þar drógum við feðgar 35 bleikjur og mesta sportið var að „raka” fiskana (öðrum orðum, rota smábleikjur). Tekinn var með leikfangavörubíll af stærri gerðinni og hann lestaður og keyrt með bleikjurnar upp í bíl til kælingar. 
Um hádegið sagði Hinrik að hann vildi fara að veiða stóra fiska, dagurinn endaði svo á því að við fengum einn tæplega 2 punda urriða úr Litlasjó. 
Á leið upp í stóra skála, þar sem við feðgar sváfum á loftinu (nei, við vorum sko ekki með mestu lætin þar, sérstaklega ekki eftir að allir voru stofnaðir) þá ákváðum við að fara í stóra Fossvatn síðasta morguninn og ætluðum að fara þar sem við höfum séð veiðimenn vera í fiski. En þar þurfti að vaða yfir rásina sem rennur út í Kerlingalögn. Þar fór minn maður bara á háhest og sagði pabba sínum til hvernig ætti að gera þetta. 
Það leið svo ekki á löngu þar til fyrsti urriðinn beit á flugustöngina og fékk Hinrik aðeins að halda á henni til að finna hvers megnugur urriðinn í Veiðivötnum er, spenningurinn leyndi sér ekki. Tveir tæplega 3ja punda komu á land á innan við fyrsta hálftímanum og létum við þar við sitja, enda á leiðinni heim aftur þann daginn.
Það er alveg yndislegt að koma þarna upp eftir með börn. Það er svo fínt aðgengi að frábærum veiðistöðum og mestmegnis bara sandur og vatn. Fullt af gróðri til að skoða, berjatýínsla í einhverjum mæli, steinar til að kasta í vatnið ofl ofl. Tala nú ekki um móttökurnar sem maður fær frá yndislegum veiðivörðum,” sagði Gisli að lokum.