FréttirSjóbirtingur

Styttist verulega í sjóbirtingsveiðina

Hrafn Hauksson með alvöru bolta sem tók á Fossbreiðu neðan Ægisíðufoss fyrir nokkrum árum

„Sjóbirtingsveiðin í Ytri-Rangá hefur notið sífellt meiri vinsælda á undanförnum árum og áin býr yfir fallegum og kraftmiklum fiskum. Á hverju vori veiðast þar nokkrir mjög stórir sjóbirtingar í kringum 18 til 20 pund,” segir Alexander Freyr Þórisson hjá Iceland Outfitters þegar við spurðum um sjóbirtingsveiðina sem byrjar eftir 46 daga.

„Það er komin mikil eftirvænting fyrir fyrsta degi tímabilsins og því sem hann ber í vændum. 

Svæðið er rúmgott og þar eru seldar fjórar stangir og nær frá Ægissíðufossi niður að Hólsárósi. Aðgengi að veiðistöðum er mjög gott frá Ægissíðufossi og niður að Borg. Þetta gerir svæðið hentugt bæði fyrir vana veiðimenn og þá sem eru að kynnast sjóbirtingsveiði í Ytri-Rangá í fyrsta sinn. Þótt áin sé breið leitar fiskurinn gjarnan í skjól nær bakkanum þar sem hún er dýpri og straumurinn hægari.

Helstu veiðistaðir eru Ægisíðufoss, Fossbreiða, Bleikjubreiða, Sundflá, Gunnugil, Hrafntóftir, Breiðibakki, Húsabakki, Hólmabreiða, Línustrengur, Djúpós, 

Hólsárbakkar, Straumey og Borg. Auk þess leynast víða spennandi staðir þar sem finna má bæði staðbundinn urriða og sjóbirting, á merktum jafnt sem ómerktum veiðistöðum.

Sjóbirtingurinn er almennt í mjög góðum holdum eftir veturinn. Hann er kraftmikill og oft á tíðum mikið á hreyfingu. 

Ekki er óalgengt að fiskur gangi til sjávar og komi síðan aftur upp í á með stuttu millibili, sem gerir veiðina lifandi og spennandi. Algengast er að veiða með púpur eða straumflugur. Veitt er bæði með tvíhendum og einhendum, ýmist með sökklínum eða flotlínum eftir aðstæðum. Mælt er með að fara ekki undir línuþyngd 6 á einhendu og línuþyngd 7 á tvíhendu, sérstaklega þegar von er á stórum birting. 

Seldar eru tvær eða fjórar stangir saman stökum dögum og fylgir þá gisting í sumarhúsinu Hallanda sem rúmar allt að átta manns. Veiðin er yfirleitt jöfn út tímabilið og því er maí ekki síðri kostur en apríl.

Þróunin síðustu ár hefur verið jákvæð og allt bendir til þess að sjóbirtingsveiðin í Ytri-Rangá eigi áfram eftir að styrkjast. Fyrir marga markar vorið við árbakkann upphaf nýs veiðisumars,” segir Alexander enn fremur.

Alexander Freyr með 79 cm hæng úr Hólmabreiðu, í opnun Ytri-Rangár sjóbirtingsveiða í fyrra