Eiríkur Einarsson með flotta bleikju úr Eskivatni á opnun Veiðivatna. /Mynd: G.Bender
FréttirLaxveiðiOpnun

Veiðivötn opnuð í dag – sérstök stemning að opna vötnin

„Það er alltaf  gaman og sérstök stemning að opna vötnin hérna, en höfum oft verið við opnun þeirra,“ sagði Eiríkur Einarsson og óð út í Eskivatn og skömmu seinna kom hann í land, það var kominn fiskur á.

„Já ég hnýtti þessa flugu í morgun og bleikjan negldi sig á hana, ég er alltaf að hnýta eitthvað,“ sagði Eiríkur enn fremur. Skömmu seinna veiddi konan hans hún Sigurbjörg Sigurfinnsdóttir bleikju, það var sannarlega líf á túskunum.

„Þetta er eins og þjóðhátíðardagur að opna,“ sagði Daniel Dagbjartsson, í sama streng tók Didi Carlsson og þau flýttu sér á veiðislóðir við vötnin ásamt öllum þeim vösku veiðimönnum sem voru mættir til að renna fyrir fiska.