Reynir M Sigmunds með fyrsta laxinn í Blöndu þetta árið /Mynd: Arni Bald
FréttirLaxveiðiOpnun

Fyrsti laxinn á land í Blöndu

Fyrsti laxinn er kominn á land í Blöndu en það var veiðimaðurinn klóki, Reynir M Sigmunds, sem landaði þeim laxi, en með honum á stöng er Árni Baldursson. Laxinn veiddist á Breiðunni sunnan megin í morgun. Þetta voru þokkalega erfiðar fæðingahríðir að veiða fyrsta laxinn í ánni þetta sumarið en laxinn er flottur og fleiri eiga eftir koma á næstu dögum. Norðurá opnunarhollið gaf 30 laxa og í Brennunni hafa veiðst 2 laxar í opnun  árinnar.
Frekar kuldalegt hefur verið við veiðiskapinn síðustu daga en allt stendur það  til bóta í veðrinu. Hver áin á annarri opnar þessa dagana og veiðin byrjar víða vel.