FréttirLaxveiði

Stórar laxagöngur í Elliðaárnar en lítið annað að frétta

Frá Elliðánum í sumar /Mynd: SVFR

Laxagengd hefur verið undir væntingum veiðimanna, sem margir barma sér yfir fiskleysi. Í Elliðaánum er málum þó öruvísi háttað því svakalegar göngur hafa verið í árnar undanfarna daga.
Þegar þetta er skrifað hafa um 1.080 laxar farið um teljarann frá miðnætti afararnótt laugardags, þar af um 630 í gær og fyrradag! Samhliða hefur veiðin tekið við sér, ekki síst eftir rigningar undanfarna daga.
Í gær komu 17 laxar á land, en auk þess misstu veiðimenn tugi fiska sem voru sannarlega í tökustuði. Svipuð stemning var í sólinni sl. sunnudag, þegar ungir veiðimenn lönduðu 13 fiskum á fyrsta ungmennadegi SVFR þetta árið!
Uppgangur Elliðaánna síðustu ár hefur verið með ólíkindum, því fyrir fáeinum árum var útlitið dökkt. Fiskigengd og veiði höfðu dregist saman og áhuginn á veiðileyfum minnkað.
Sú ákvörðun SVFR að breyta veiðireglum í ánni, heimila eingöngu fluguveiði og setja á sleppiskyldu var umdeild á sínum tíma, en hefur reynst vel í alla staði.