Fréttir

Sigurður Már 40 ár í ferskfiskum – Málþing 12. mars nk.

Hafrannsóknastofnun og Landbúnaðarsafn Íslands efna til málþings þann 12. mars nk. kl. 13:00 til heiðurs Sigurði Má Einarssyni, fiskifræðingi. Sigurður Már hefur sinnt rannsóknum á ferskvatnsfiksum í rúm 40 ár, en hann hóf störf hjá Veiðimálastofnun árið 1981 með námi. Í júní 1985 tók hann við starfsstöð Veiðimálstofnunar á Vesturlandi, fyrst með starfsstöð í Borgarnesi en síðar á Hvanneyri. Helsti starfsvettvangur hans hefur engu að síður verið þær fjölmörgu laxveiðiár sem finna má á Vesturlandi.

Á málþinginu verður farið yfir rannsóknir á ferskvatnsfiskum og samstarf við veiðifélög sl. fjóra áratugi frá starfstöðinni á Vesturlandi. Einnig verða sérstök erindi um rannsóknir á sjóbleikju í Hvítá í Borgarfirði og um ferðir laxa í sjó.

Nákvæmari dagskrá og heiti erinda verður birt síðar.

Málþingið verður haldið í Ársal í Ásgarði á Hvanneyri, húsnæði Landbúnaðarháskóla Íslands . Eftir að erindum lýkur verður boðið upp á spjall og léttar veitingar í Landbúnaðarsafni Íslands í Halldórsfjósi á Hvanneyri. Þar var sett upp sýning um sögu laxveiða í Borgarfirði síðastliðið sumar sem gestum gefst tækifæri til að skoða.