Fréttir

Aðalfundur SVFR í kvöld

Stjórn SVFR 2024-2025 Efri röð: Halldór Jörgensson, Dögg Hjaltalín og Brynja Gunnarsdóttir. Neðri röð: Trausti Hafliðason, Hrannar Pétursson, Ragnheiður Thorsteinsson og Helga Jónsdóttir

Minnum á aðalfund Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem fram fer í kvöld, fimmtudaginn 27. febrúar, klukkan 18:00 í Akoges salnum Lágmúla 4. Boðið verður upp á léttar veitingar og eru félagsmenn hvattir til að mæta og efla tengslanetið.

Dagskráin er sem hér segir:

1. Formaður setur fundinn
2. Formaður minnist látinna félaga
3. Formaður tilnefnir fundarstjóra
4. Fundarstjóri skipar tvo fundarritara
5. Inntaka nýrra félaga
6. Formaður flytur skýrslu stjórnar
7. Gjaldkeri les upp reikninga
8. Framkvæmdastjóri kynnir rekstraráætlun 2025/2026
9. Umræður um skýrslu og reikninga
10. Reikningar bornir undir atkvæði
11. Gjaldkeri ber fram tillögu um árgjöld
12. Kynning og kosning formanns til eins árs (sjálfkjörið)
13. Stjórnarkjör (3 framboð í 3 stöður – sjálfkjörið)
14. Kynning og kosning á nýjum aðilum í fulltrúráð
15. Kosning tveggja skoðunarmanna
16. Tillaga að endurskoðenda félagsins
17. Önnur mál
18. Formaður flytur lokaorð
19. Fundastjóri slítur fundi