„Þann 22. maí boðaði Hafrannsóknastofnun til fagnaðar þar sem spáð var fyrir um laxveiðina sumarið 2025. Ég mætti nú ekki á þá samkundu, enda orðinn eldri en svo að sitja undir þeim spádómi og borða snittur með sérfræðingum sem hafa milligöngu um að hella Vítissóda í íslenska firði. Ég kaus að nota þá hitabylgju sem reið yfir landið til að sinna ánum mínum í einmuna blíðu. Það sem vakti hins vegar athygli mína meðan á snittuátinu stóð var ótrúleg niðurganga seiða í kjölfarið á hitunum í vor. Svo mikill var seiðafjöldinn að það fóru að renna á mig tvær grímur.
Í fyrra reið yfir landið kaldasta vor og sumar á þessari öld, eða það sem við í Kjósinni köllum tveggja lopapeysu veður. Svo kalt var víðast um land að dæmi voru um að menn væru að moka bíla úr snjósköflum í júnímánuði. Minnti þetta eldri menn á árin upp úr 1980 sem höfðu miklar afleiðingar fyrir laxastofna víða um land.
Nú er staðan sú að mér þykir einsýnt að laxaseiði hafi ekki gengið til sjávar sl. vor. Þau sem þó lögðu það á sig hafi verið í bágbornu ástandi við niðurgöngu. Því er hætt við að sumarið muni vera í líkingu við veiðisumarið 2012 þar sem lítið var um smálax og megnið af þeim sem þó komu úr sjó voru illa haldnir, 50-55cm langir. Það voru afleiðingar kuldakastsins mikla sem skók landið í maí og júní árið 2011.
Í framhaldinu kom svo stórkostlegt veiðisumar 2013, enda ekki nema von þegar að tveir árgangar laxaseiða skila sér úr sjó á sama sumrinu. Það er því von á góðu veiðisumarið 2026.
Maður spyr sig hvort að sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar sem sáu óumbeðnir um væntingastjórnunina þetta árið hafi hreinlega gleymt þeirri augljósu breytu sem ógnarkalt vor og sumar getur haft. Hitastig sjávar skiptir nefninlega engu máli ef engin seiði ganga til hafs.
Nú kunna margir að spyrja sig hvort ég sé hér ósanngjarn gagnvart stofnuninni og þeim sérfræðingum sem starfa bæði á Hafró og Fiskistofu og það má vel vera.
Hins vegar geri ég þá kröfu á þá sem á þessum málum halda að þeir bregðist nú við með mannsæmandi hætti þegar að laxagöngur eru jafn litlar og nú í stað þess að stimpla sig út í sumarfrí.
Nú er lag fyrir Fiskistofu og Hafró að hysja upp um sig buxurnar, og setja bann við drápi á stangarveiddum laxi þar til að mögulega úr rætist síðar á tímabilinu. Þá væri hægt að endurmeta stöðu mála með það fyrir augum að tryggja að hrygningastofn verði hreinlega til staðar í haust.
Jafnframt væri kannski sniðugt fyrir stofnunina að banna alla netaveiða á laxi meðan þessi óvissa er uppi og koma um leiða á sölubanni líkt og með alla aðra stofna sem verða fyrir áföllum. Ég einfaldlega neita að trúa því að stofnunin ætli sér að leyfa netaveiði í Hvítá, Ölfusá og Þjórsá í núverandi ástandi og leyfa sölu villtra laxa í fiskbúðum landsins.“