Fyrsti fiskurinn í Laxá í Leirársveit /Mynd: Sigurður
FréttirOpnun

Rigningin gæti bjargað ýmsu

„Ég fékk lax í Ljóninu,” sagði Sigurður Hrafn Smárason sem veiddi fyrsta fiskinn í Laxá í Leirársveit, sem opnaði í gær og það kom fiskur í dag, það tók kannski tíu mínútur að landa laxinum, hann tekur í Ljóninu  og er þar stutta stund en straujar þaðan uppi í Sunnefjufoss og ég landaði honum þar,” sagði Sigurður enn fremur.

Sem betur fer ringdi aðeins í dag en hvort það dugir til veit enginn. Laxá í Kjós er róleg ennþá en laxar hafa sést í ánni og í dag sáust þrír vel vænir í Laxfoss en þá hafði aðeins farið að rigna. 

„Ég held að það þurfi að rigna og rigna í nokkra daga, það myndi kannski duga eitthvað, sagði veiðimaður í Borgarfirði en holl sem var að hætta veiðum í Þverá fékk 7 laxa en Kjarrá hefur gefið um 30 laxa í opunarhollinu.

Árnar hafa minnkað verulega en það eru skúrir í kortunum. Þess vegna getur verið ágæt að bíða, það gæti bjargað ýmsu.