Tekur sjóbirtingurinn við af laxinum?
Flugufréttir eru 25 ára á árinu og af því tilefni verður blásið til hittings og spjalls undir yfirskriftinni: „Tekur sjóbirtingurinn við af laxinum?
Benóný Jónsson, líffræðingur og starfsmaður Hafrannsóknarstofnunar fjallar um sjóbirtinginn og uppgang hans á síðustu árum. Í kjölfarið verða umræður þar sem veiðileyfasalinn Haraldur Eiríksson og leiðsögumaðurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Sigþór Steinn Ólafsson munu ræða stöðu sjóbirtingsins frá fjölbreyttum sjónarhornum ásamt Benóný. Stefán Jón Hafstein stofnandi Flugufrétta mun stjórna fundinum og leiða umræður.
Viðburðurinn fer fram næsta þriðjudag 18. nóvember kl.17 í Sölku bókabúð, Hverfisgötu 89.

