FréttirLaxveiðiOpnun

Þjórsá að opna á sunnudaginn

Birna Harðardóttir og Haraldur Einarsson munu opna Þjórsá meðal annarra /Mynd G.Bender

„Já við erum orðin spennt að opna Þjórsá á sunnudaginn, alltaf hefur veiðst eitthvað af laxi,”sagði Stefán Sigurðsson og Harpa Hlín Þórðardóttir, en þá byrjar laxveiðin fyrir alvöru og þau bættu við; „það eru eigendurnir á Urriðafossi og Matthias sonur okkar sem opna.  Það er alltaf gaman að byrja,” sögðu þau bæði.

Fyrsti laxinn er kominn á land í Skugga í Borgarfirði og laxar búnir að sjást víða eins og Norðurá í Borgarfirði og Laxá í Kjós. Lax sást  stökkva við Seleyri við Borgarfjörð og lax renna sér upp Hvítá. Líka laxar neðarlega í Gljúfurá í Borgarfirði svo allt er þetta að koma.

En hvernig sumar verður veit enginn,  hnúðlaxinn kemur örugglega og mikið þarf að rigna til að halda ánum í lagi stóran hluta sumarsins, það verður eitthvað bíóið.

Sjaldan hefur snjórinn verið minni eftir veturinn, hann er nánast horfinn á stórum hluta landsins. Það borðar ekki gott.