Fréttir

Styttist í næsta veiðisumar

Í júní næstkomandi verða frábær tveggja daga tvíhendunámskeið í Blöndu. Farið verður yfir tvíhendu köst og veiði í smáatriðum jafnt innan sem utandyra. Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem vilja annaðhvort læra að kasta eða bæta tvíhenduköstin sín með möguleika á að veiða risa lax í leiðinni! Kennt verður í heilan dag undir leiðsögn Glendu svo verða köstin æfð í raunverulegum aðstæðum á svæði 1 í Blöndu þar sem þú átt möguleika á að setja í alvöru lax undir leiðsögn Þorsteins Hafþórssonar sem er allra reyndasti veiði og leiðsögumaður landsins í Blöndu.

Dagsetningar:
6-8 Júní. Uppselt

7-9 Júní.

8-10 Júní.

Dagur 1
• 14:30. Þú mætir í veiðihúsið Hólahvarf. Létt hressing í boði við komu. Því næst er herbergjum úthlutað. 
• 16:00. Námskeið hefst inni í borðsal Hólahvarfs og verður bæði innan og utandyra. 
• 20:00. Námskeiði lýkur þennan daginn og nemendur slaka á og hafa gaman. 
• 20:30. Þriggja rétta kvöldverður og skemmtileg heit.

Dagur 2
• 07:00. Morgunverður.
• 08:00. Tvíhenduköstin æfð í þaula í rennandi vatni á efri svæðum Blöndu.
• 12:00 Námskeiði undir leiðsögn Glendu líkur. Nemendum er frjálst að æfa köstin áfram og jafnvel egna fyrir silung ef þeir óska. 
• 13:00 Hádegisverður. 
• 15:00. Veiði hefst á svæði eitt undir leiðsögn Þorsteins Hafsteinssonar. 
• 20:00. Veiði líkur. 
• 20: 30. Þriggja rétta kvöldverður og hörkufjör. 

Dagur 3
• 07:00 Morgunverður. Gestir tæma herbergi og fá með sér nestispakka frá veiðihúsinu
• 08:00 Veiði hefst á svæði 1 undir leiðsögn Þorsteins Hafsteinssonar.
• 13:00 Veiði líkur, brottför.

Kennari:
Glenda Powel
kemur frá Írlandi og hefur starfað í greininni frá blautu barnsbeini við ánna Blackwater í Írlandi. Hún hefur kennt fjölda fólks að kasta tvíhendu sem og einhendu, byrjendum, lengra komnum sem og kennurum. Hún hefur unnið til fjölda verðlauna og vann t.a.m heimsmeistaratitil kvenna í lengdarköstum árið 2006. 


Leiðsögumaður:
Þorsteinn Hafþórsson eða Steini Haff eins og hann er kallaður er fæddur og uppalin á Blönduósi. Hann hefur verið við bakka Blöndu frá blautu barnsbeini og enginn þekkir Blöndu eins og Steini. Áhugi hans á veiði og  þá sérstaklega á Blöndu er á hæðsta stigi og er hann fæddur með veiðidellu af eigin sögn. Hann byrjaði að leiðsegja veiðimönnum 1994 og hefur því gríðar mikla reynslu á bakinu. Það er okkur mikill heiður á að fá Steina í lið með okkur og ef einhver á að koma veiðimanni í fisk á þessu námskeiði þá er það Steini.

Verð
Verð fyrir hvert pláss á námskeiði er kr. 86.500,-