BleikjaFréttirSjóbirtingur

Sjóbleikjan er mætt í Fögruhlíðarósinn

Áður en norðanhretið brast á fór Sigurður Staples, (Suddi) og fleirri í Fögruhlíðarósinn til að athuga hvort sjóbleikjan væri mætt. Og hún var það, það komu 35 bleikjur og 2 sjóbirtingar á land þessa tvo daga af ýmsum stærðum og stærsti fiskurinn var 55 cm sjóbirtingur.
Það lofar góðu og er Fögruhlíðarósinn einn af fáum valkostum þar sem sjóbleikjan virðist halda velli ennþá en henni hefur víðast hvar verið að fækka. Veiðileyfið kosta kr. 20.000 í júní en hækkar í júlí enda eykst þá laxveiðivon einnig. Það eru 4 stangir seldar í Fögruhlíðará en ekkert veiðihús fylgir með þessu svæði nema núna í júní. Það er frábært að vera í stórbrotnu umhverfi í ósnum og veiðitími er líka sveigjanlegur enda er veiðin mjög háð sjávarföllum og næturveiðin í miðnætursól oft ógleymanleg.