Syðri Brú er stórskemmtilegt laxveiðisvæði og eitt af fáum einnar stanga laxveiðisvæðum landsins. Svæðið hefur verið sérlega vinsælt þar sem það er stutt frá Reykjavík með glæsilegu veiðihúsi sem rúmar 10 til 12 manns.

Syðri Brú hefur oft í gegnum tíðina verið með hæstu veiði á stöng í Soginu. Besti veiðistaðurinn Landaklöpp, sem er efst á svæðinu, hefur oft gefið frábæra veiði. Viljum við benda veiðimönnum á að öll veiði er bönnuð frá gömlu brú sem liggur ofan við Landaklöpp.

Aðrir veiðistaðir eins og Bláhylur hafa oft gefið góða veiði en veiðimenn hafa viljað festast við veiðar á Landaklöppinni þar sem fiskur er oft duglegur að sýna sig.
Sakkarhólmi er einn langur veiðistaður sem oft hefur gefið vel af vænni bleikju, urriða en þó lax líka.

Sumarið ´2025 bætast við 3 silungastangir við þessa einu stöng í Soginu, Syðri Brú en um er að ræða veiðisvæði í lóni á milli virkjana og eru þær stangir innifaldar í verði áveiðileyfum Syðri Brúar.

Leyft verður að veiða í lóninu á milli virkjana en þar hefur veiði ekki verið leyfð í mörg ár. Í lóninu er staðbundinn Urriði og Bleykja og geta þeir fiskar oft verið mjög vænir.

Leyfilegt agn í lóninu verður fluga, maðkur og spúnn á svæðinu.

Bendum við veiðimönnum á að fara varlega þar sem veitt er frá frekar háum bakka en björgunarvesti eru til staðar í veiðihúsinu og svo tveir björgunarhringir á staurum með 30 metra áfastri línu er á tveim stöðum á bakkanum á veiðisvæði lónsins.