Fluguhnýtingafélag Vesturlands verður stofnað 4. október nk.
Eftir 6 velheppnuð fluguhnýtingakvöld þrjú á Akranesi og þrjú í Borgarnesi síðasta vetur fóru félagarnir Jóhann Ólafur Björnsson og Valdimar Reynisson að velta fyrir sér hvernig best væri að virkja og helst auka þennan fluguhnýtingaáhuga hjá Vestlendingum. Niðurstaðan var sú að þeir ákváðu að stofna félag fyrir fluguhnýtingafólk á vesturlandi.
Við viljum virkja þennan áhuga sem virðist vera fyrir fluguhnýtingum á vesturlandi til að fá fleiri til að hnýta og byggja upp samfélag fluguhnýtingafólks sem hefur þá sameiginlegan vettvang fyrir hnýtingar, fræðslu og samveru við aðra hnýtara.
Félagarnir tveir fengu Heiðar Þór Lárusson með sér í lið við undirbúning og skipulagningu á stofnun félagsins þeir eru búnir að forma hugmyndir um hlutverk, lög og tilgang félagsins, nafnið er komið og er það Fluguhnýtingafélag Vesturlands.
Fluguhnýtingafélag Vesturlands hyggst standa fyrir opnum fluguhnýtingakvöldum um vesturland fyrsta kvöldið verður laugardaginn 4.október í keilusalnum á Akranesi það kvöld verður einnig stofnfundur félagsins. Síðan er ætlunin að halda fluguhnýtingakvöld í Borgarnesi og víðar á vesturlandi ef vilji er til. Þessi kvöld eru öllum opin og viljum við sjá sem flesta. Byrjendur og aðrir áhugasamir eru sérstaklega hvattir til að mæta og kynna sér fluguhnýtingar þeir sem vanari eru standa upp frá sínum tækjum og leyfa öðrum að prófa og leiðbeina þeim við hnýtingar. Leitast verður við að fá góða gesti á fluguhnýtingakvöldin sem gefa þáttakendum góð ráð og innblástur. Einnig er á stefnuskrá félagsins að fræða fluguhnýtara með námskeiðum og fyrirlestrum, þar sem jafnvel eru fengnir þekktir hnýtarar til að fræða. Það er von Jóhanns og Valdimars að félagið verði með tímanum þekkt og leitað verði til þess eftir fræðslu um fluguhnýtingar eða námskeiðahalds.
Félagsgjöldum verður mjög stillt í hóf, félagsgjöldin verða nýtt í að kaupa búnað, efni og fræðsluefni til fluguhnýtingar.
Jóhann og Valdimar eru spenntir fyrir vetrinum og vonast til að fá góða þátttöku á fluguhnýtingakvöldum og að sem flestir kynnist þessari rólegu tómstundaiðju sem að skerpir á einbeitingu, samræmir hreyfingar hugar og handar og er frábær núvitund.
Fluguhnýtingar henta af öllum kynjum og breiðum aldurshópi fjölskyldur geta sameinast við fluguhnýtingar það þarf ekki krafta eða dýrar græjur til að hnýta flugur, hægt er að komast langt með byrjenda setti og góðu ljósi. fluguhnýtingar efla einbeitingu, samræma hug og hönd og eru ein af betri núvitundaræfingum sem finnast. Svo er mun skemmtilegra að veiða fisk á flugu sem hnýtt er af viðkomandi veiðifólki.
