Við Laxfoss í Norðurá í Borgarfirði /Mynd: María Gunnarsdóttir
FréttirLaxveiðiOpnun

Norðurá opnar á morgun í skítakulda

„Það var skítakallt í Norðurárdalnum í dag en það á að hlýna en  ekki mikið,” sagði veiðimaður sem keyrði Norðurárdalinn í dag.  En í fyrramálið byrjar veiðin í þessari fornfrægu veiðiá  og lax hefur sést fyrir nokkru í ánni.

En veiðin hefst í kulda og trekki fyrstu dagana og verður spennandi að sjá hvernig veiðintíminn byrjar en eitthvað hefur gengið af fiski í ánni. Veiðitímabilið hefur byrjað vel í Þrjósá og komnir  ium 20 laxar, sá stærsti 96 sentimetrar.

Blanda byrjar síðan á fimmtudaginn en mikið hefur verið talað um yfirfall þar um slóðir, en það er ekki komið ennþá.