Viltu veiða í Langá með meistaranum?
Stórveiðimaðurinn Árni Baldursson gekk í SVFR í vetur eftir 30 ára aðskilnað og af því tilefni höfum við sett í sölu sérstakt gestgjafaholl með meistaranum á frábærum tíma eða 10. – 12. júlí. Þetta er sá tími sem laxinn gengur á fullum þunga upp Langá og jafnframt einn skemmtilegasti tíminn í ánni.
Já Árni er kominn aftur í félagið eftir að hafa verið settur utan sakramentis í 30 ár og verður þessi veiðitúr verulega fróðlegur með þessum mikla veiðimanni í Langá á Mýrum þegar laxinn er að ganga í ána.