Nuno Alexandre Bentim Servo
FréttirLaxveiði

22 laxar komnir á land í Norðurá – enginn lax í Blöndu í morgun

„Það eru komnir 22 laxar á land í Norðurá og hitastigið við ána er aðeins að lagast,“ sagði Nuno Alexandre Bentim Servo, sem fékk flotta lax í morgun. En veiðin byrjar bara vel í ánni þrátt fyrir kuldatíð til að byrja með.

„Fengum tvo laxa á stöngina og misstum annað eins, fiskurinn tók grannt, þetta er í fínu lagi og það er að hlýna aðeins,“ sagði Nuno enn fremur.

Enginn lax í Blöndu í morgun, einn sjóbirtingur
„Það var enginn lax á morgun vaktinni, ansi kalt tvö gráður og áin er lituð,“ sagði Kristján Páll Rafnsson en Blanda opnaði í morgun og bætti við; „það er mikil snjóbráð og allir lækir brúnir, en það veiddist einn sjóbirtingur 50 sentimetrar. En þetta er allt að byrja og kemur allt með tíð og tíma,“ sagði Kristján í lokin.
Veðrið er að skána, það er aðeins að hlýna, vatnið að minnka og allt að verða betra.