Fréttir

Stefnir í mesta þurrkasumar sögunnar

Snjólítið við Hraun í Öxnadal fyrir fáum dögum /Mynd: María Gunnarsdóttir

Það þarf engin geimvísindi til að sjá að staðan er allt annað en góð fyrir næsta sumar varðandi vatnsbúskapinn. Það snjóar næstum ekkert á stórum hluta landsins og ef snjóar eitthvað þá hverfur sú föl eftir nokkra daga og allt orðið autt aftur. Staðan er ekki góð, það verður eiginlega að rigna stóran hluta næsta sumars til að vatn komist í árnar. En hver vill það úrfelli sumarlangt!

„Það er ekki góð staða með vatnsbúskapinn næsta sumar og það er fín spáin áfram næstu vikurnar,“ segir bóndi við mig, hokinn af reynslu og bætir við; „það er langt síðan kom svona tíðarfar og það hefur bara ekkert snjóað síðan í október, veðurfarið er að breytast verulega mikið,“ segir hann og gengur niður með árbakkanum. Það er vor í lofti.

Tíðarfarið í veðráttunni  víða um landið er áhyggjuefni, enginn snjóaforði fyrir sumarið  og eina sem getur bjargað þessu er rigning næsta sumar. Það virðist verst á Vesturlandi og Norðurlandi en eins og maðurinn sagði þá getur allt gerst ennþá. Það getur auðvitað farið að snjóa úr þessu en sá snjór frýs ekki nema í nokkrar vikur.

„Veðurfarið er að breytast, það snjóaði vel fyrir áramótin og það bjargaði miklu hér áður fyrr, en það er nú liðin tið,“ sagði veiðimaður sem hefur miklar áhyggjur með sumarið og veiðina. Enginn veit hvernig veiðin verður í sumar, ekki einu sinni fiskifræðingarnir og alltof margar hættur setur að ánum síðustu misseri, strokulöxum fjölgar og öllum virðist vera sama. Náttúrulegu löxunum mun fækka með hverju ári. 

Laxveiðin hefur dregist saman síðustu ár, því verður að snúa við og náttúrulegum löxum má ekki fækka meira.
Þetta er staðan þegar styttist í næsta veiðitíma.