Auðvelt að plata mann í veiði
„Eins og undanfarin ár ískrar í mér af spenningi fyrir komandi tímabili,“ segir Helga Gísladóttir (Helga veiðir) um komandi veiðisumar. „Er búin að vera nota veturinn til að koma mér í almennilegt form fyrir sumarið, sé fram á að þurfa að endurnýja vöðlurnar, er búin að vera svo helv… dugleg. Tröllafiskaflugur hnýttar á fullu og fyllt á boxin, fiskarnir eiga eftir að hoppa sjálfir á land þegar þeir sjá þær…
Fyrsti bókaði túrinn er í apríl í Geirlandsá eins og undafarin ár. Það er nettur spenningur í hópnum en smá fyrirtíðarspenna með hvernig veðrið verður. Verður allt á kaf í snjó eða verður sama veðurblíða og búin er að vera? Skiptir ekki máli, matseðilinn er góður og skemmtilegur hópur.
Í maí verður það Eldvatnið, verður gaman að prufa það að vori, fór fyrst síðasta haust. Þetta er svæði sem tekur nokkra túra að kynnast en skemmtilegt, fullt af áskorunum.
Í júní verður Norðurá, opnun Veiðivatna og Laxá í Laxárdal. Fór í fyrsta skiptið í Norðurá í fyrra, virkilega skemmtileg á og hlakka til að endurnýja kynnin, þótt svo að ég hafi núllað. Það er svo þrítugastiogfjórði túrinn með gamla Stöðvar 2 genginu í Veiðivötn. Öll löngu hætt á Stöðinni en höldum þessum túr. Alltaf jafn gaman. Eftir Veiðivötn er farið beint í Laxá í Laxárdal með kvennanefnd SVFR . Þetta er þriðja árið sem kvennanefndin er með holl þar og því bera að fagna.
Í júlí er það svo Norðlingafljótið. Ein af ástæðunum fyrir því að ég er búin að hamast í ræktinni og byggja upp þol. Fann eftir túrinn í fyrra að þetta labb var ekki alveg að gera sig. Hlakka því mikið til að fara í sumar.
Í Ágúst verð ég svo með kvennaholl í Veiðivötn, 20 kellur, skellum okkur saman. Þetta er 6. árið sem ég er með þetta holl, mikið til sami kjarninn en það er alltaf gaman að fá nýjar konur inn og kynna þær fyrir þessari paradís.
Loka þessu í september með að fara í Langá með Hrygnunum og svo förum við nokkrar vinkonur í Andakílsá.
Þetta eru nokkrir bókaðir dagar, í alls konar veiði, vorveiði, straumvatnsveiði, vatnaveiði í urriða og lax. Verð nú að viðurkenna að urriðaveiðinn er skemmtilegri. Gaman að nýta sér alls konar tækni og aðferðir hvort sem maður er að dúllast með litla þurrflugu, púpu eða tröllafiskaflugu.
Ef ég þekki sjálfan mig rétt að þá á eitthvað eftir að bætast við. Það er yfirleitt auðvelt að plata mig í óvænta veiði… Vúpp, vúpp, vúpp,“ segir Helga enn fremur.


