Hítará er bergvatnsá sem rennur úr Hítarvatni eftir Hítardal og fellur í Akraós. Hítará afmarkar Mýrasýslu og Snæfells- og Hnappadalssýslu

Í ánni eru fossarnir Kattarfoss og Brúarfoss og er í henni góð laxveiði en hún er nú laxgeng allt til upptaka. Selir ganga stundum upp í ána allt að Brúarfossi. Jóhannes á Borg byggði sér veiðihús á árbakkanum og kallaði Lund. Þar er að finna mikið safn uppstoppaðra fugla sem Jóhannes viðaði að sér.


Heimild: Björn Hróarsson (1994) Á ferð um landið