Hreindýr / Mynd/Jóhann Óli Hilmarsson

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur auglýst hreindýraveiðikvóta ársins 2023. 

Umsóknarfrestur
Umhverfisstofnun annast sölu hreindýraveiðileyfa. Umsóknarfrestur er til og með þriðjudeginum 28.febrúar en umsóknum skal skilað inn á vef Umhverfisstofnunar www.ust.is/veidimenn. Útdráttur verður auglýstur síðar.

Veiðiheimildir
Heimilt er að veiða allt að 901 hreindýr árið 2023, 475 kýr og 426 tarfa. Þessi fjöldi er með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum. 

Gjald
Samkvæmt gjaldskrá nr. 111/2023 er veiðileyfagjaldið kr. 180.000 fyrir tarf og kr. 103.000 fyrir kú. Veiðileyfagjaldið greiðist eigi síðar en 15. apríl. 

Veiðitímabil
Veiðitími tarfa er frá 15. júlí til og með 15. september. Á tímabilinu 15. júlí til 1. ágúst er veiði á törfum einungis heimiluð að því tilskildu að þeir séu ekki í fylgd með kúm og að veiðarnar trufli ekki kýr og kálfa í sumarbeit.

Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til og með 20. september. Þeim eindregnu tilmælum er beint til veiðimanna að fyrstu tvær vikur veiðitíma skulu veiðimenn og leiðsögumenn í lengstu lög forðast að fella mylkar kýr og veiða eftir fremsta megni geldar kýr. Þessum tilmælum er ætlað að draga úr áhrifum veiða á kálfa og stuðla að því að kálfar verði ekki móðurlausir fyrir 12 vikna aldur. 

Sérstök tilmæli
Í því skyni að draga úr líkum á að hreindýrin á veiðisvæði 9 leiti milli sauðfjárveikivarnahólfa yfir í Öræfasveit skulu dýr Suðursveitar, 18 tarfar og 22 kýr, veidd á Breiðamerkursandi og fjalllendi þar eftir fremsta megni. Tilmælum þessum er einnig ætlað að stuðla að fækkun  hreindýra sem gengið hafa á Breiðamerkursandi og valdið þar skemmdum á viðkvæmum gróðri. 

Á tímabilinu 1. nóvember til og með 20. nóvember eru veiðar á kúm heimilaðar á svæðum átta og níu. Í umsókn um veiðileyfi er valið um veiði á hefðbundnum veiðitíma eða nóvemberveiðitíma.

Veiðiheimildir eftir svæðum
Veiðiheimildir árið 2023 skiptast sem hér segir eftir veiðisvæðum og kyni dýra:

SvæðiKýrTarfarAlls
1110110220
2151530
35056106
4521870
5473986
6336497
711470184
8102232
8 (nóv)12x12
9103242
9 (nóv)22x22