Fréttir

Hamfarir á stórum hluta Vesturlands – milljónir laxaseiða drepist í vatnavöxtunum

Hvolsá og Staðarhólsá / Mynd: Sæmundur

„Ég hef aldrei séð annað eins og þessa vatnavexti hér í Dölunum í dag,“ sagði Sæmundur Kristjánsson hjá Vegagerðinni í Búðardal, en hamfarir voru á stórum hluta Vesturlands síðustu klukkatímana.

Ár urðu að stórfljótum og vegfarendur komust hvorki lönd né strönd. Á lóninu í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum hreinsaðist brú út á sjó sem veiðimenn standa á sumrin og veiða fisk.

Seiði hafa drepist í stórum stíl í ánum á svæðinu sem hafa skolast út á haf.  Enda erfitt fyrir seiðin að komast í skjól í þessum vatnavöxtum sem engu eyra. Staðir og hyljir í ánum þekkjast vart lengur eftir þessar óvenjulegu hamfarir. 

Myndin var tekin í lóninu í dag þar sem Hvolsá og Staðarhólsá renna í ósinn og brúin stendur þarna ennþá, rétt áður en hún fór fyrir fullt og allt.