Opnun og páskarnir með laust í Minnivallalæk
Vegna forfalla er Minnivallalækur laus fyrstu vikuna í apríl og nú eru páskarnir óvenju snemma eða 2. – 6. apríl. Tilvalið að taka úr sér spennuna eftir veturinn, stangardagurinn með frábærri gistingu er á kr. 35.000. Yfirleitt eru allar 4 stangirnar seldar saman í holli en með stuttum fyrirvara má líka kaupa stakar stangir.
Má nefna að 2. apríl í fyrra veiddust 13 fiskar og voru þeir stærstu á milli 60-70 cm, ekki amalegt að byrja sumarið!
„Það hefur oft veiðst í byrjun vors þegar lækurinn og fiskurinn er vænn,” segir Þröstur Elliðason hjá Strengjum.

