Boltableikjur á Kaldárhöfða
„Við Magnús Stefánsson vorum að prufa Kaldárhöfða svæðið í fyrsta skipti og það er óhætt að segja að það tók vel á móti okkur,“ sagði Daníel Karl Egilsson, sem var að koma af svæðinu á Kaldárhöfða með flotta veiði.
„Fengum 9 fiska sem voru frá 42 – 60 cm. Þeir tóku Killer og Kibba. Það leikur enginn vafi á því að við munum stunda þetta svæði mikið í framtíðinni,“ sagði Daniel enn fremur um flotta veiði.

