DorgveiðiFréttir

Ísa farið að leysa víða, en ennþá spáð hörkufrosti

Þessir voru á veiðum við Vífilsstaðavatn í vikunni en lítið var að hafa meðan við stöldruðum við /Mynd: María Gunnarsdóttir

„Við urðum að hætta dorgveiðinni í nokkra daga, ísinn var orðinn þunnur á pörtum og aðeins farinn af vötnunum. En það er spáð hörkufrosti næstu daga og þá kemst þetta aftur í lag með dorgveiðina, höfum víða veitt í vetur,“ sagði dorgveiðimaður sem stundar dorgveiði á veturna og bætti við; „við förum þrír saman að veiða, þetta er skemmtilegt sport sérstaklega þegar veðurfarið er eins og verið hefur í vetur. Fiskurinn er vel haldinn í vötnum og útiveran verulega góð,“ sagði veiðimaðurinn enn fremur.

Margir stunda orðið dorgveiði og hægt að fá leyfi þar sem vötn eru með aðstöðu. Eitt vatn hefur mikið verið stundað í vetur og það er Meðalfellsvatn í Kjós. „Já það eru alltaf einhverjir að veiða, fimm, sex bílar hverja helgi þegar ísinn er góður, mikið sömu mennirnir,“ sagði Sigurþór Gíslason á Meðalfelli.

Útiveran er góð, veðurfarið verið frábært og það fær veiðimenn til að hreyfa sig og renna fyrir fisk. Biðin styttist með hverjum deginum í að vorveiðin hefjist.