Haraldur Björnsson með mariulaxinn sinn 102 sentímetra í Laxá í Aðaldal
FréttirMaríulax

Maríulaxinn í stærri kantinum í Aðaldal

„Maríulaxinn kom loksins í dag í Laxá í Aðaldal, 102 cm og veiddist á Knútsstaðartúni,“ sagði Haraldur Björnsson ánægður með laxinn sinn stóra og maríulaxinn.
„Það gerir þetta augnablik ennþá skemmtilegra að hugsa til þess að pabbi var þar í sveit fimm sumur sem gutti. Stór stund á fallegum stað,“ sagði Haraldur enn fremur.