„Það var fín veiði í síðasta holli í Heiðarvatni og þeir fengu 25 sjóbirtinga frá 45 til 86 sentimetra, flott veiði,“ sagði Ásgeir Arnar Ásmundsson þegar við spurðum um Heiðarvatn í Mýrdal, sem hefur verið að gefa flotta veiði og væna fiska.
„Já sjóbirtingur að gefa sig, síðan hafa verið að veiðast urriðar og nokkar bleikjur. Við veiðum í vatninu eitthvað út október,“ sagði Ásgeir ennfremur.
Ásgeir er með Skógá á sinni könnu og þar hafa veiðst á annað hundrað laxar. Ennþá er hægt að renna fyrir fisk í ánni en hún er líka opin út október.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/09/E7696E99-7145-4F26-AEE1-100357EECBC2-1024x682.jpeg)
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/09/2B1719F8-D27C-47B8-A80C-081241DD3E2C-1024x682.jpeg)