Stangaveiðifélag Selfoss fagnar 80 ára afmæli – Jógvan Hansen veislustjóri
Í tilefni 80 ára afmælis Stangaveiðifélags Selfoss verður haldin vegleg afmælishátíð þann 14. febrúar n.k. á Hótel Selfossi. Húsiỗ opnar kl. 18:00 þar sem gestir eru boðnir velkomnir með fordrykk og léttum veitingum. Tónlistarkonan Elísa Dagmar sér um ljúfan tónlistarflutning í upphafi hátíðar og skapar hatíðlega stemningu áður en borðhald hefst.
Jógvan Hansen stýrir veislunni af sinni alkunnu snilld og tryggir lifandi og skemmtilega dagskrá.
Í tilefni afmælisins verður afmælisfluga SVFS kynnt til sögunnar, auk þess sem gestir geta tekið þátt í glæsilegu happdrætti með veglegum vinningum.
Á tjaldi verður jafnframt sérstök myndasýning úr 80 ára sögu félagsins, sem tekur gesti í ferðalag um starf félagsins í gegnum áratugina.

