Stórlax slapp í Strengjunum
„Opnunardagur í Grímsá var í dag og fyrsti laxinn veiddist í Lækjarfossi,“ sagði Jón Þór Júlíusson um fyrsta daginn í ánni þetta árið og bætti við stór fiskur einnig tapaðist í Strengjum en við vonuðumst eftir fleirum. Sáum fisk í Laxfossi, Svartastokki, Stórlaxafloti, Hörgshyl og Sýslumannsbroti. Þannig að útlitið er bjart fyrir morgundaginn,“ sagði Jón Þór enn fremur.
Já hver veiðiáin opnar af annarri og það hefuraðeins rignt, sem skiptir öllu þessa dagana. Næstu dagar gætu gefið gefið góðar skúrir.
